Chelsea er mjög áhugasamt um miðjumann Inter, Matias Vecino. Liðið keypti Hakim Ziyech á dögunum en hann kemur til félagsins í sumar og nú beinast augu Lundúnarliðsins að Vecino.
Vecino er falur fyrir 23 milljónir punda og segir Daily Express frá því að Frank Lampard, stjóri liðsins, hafi mikinn áhuga á að fá þennan úrúgvæska leikmann.
Vecino er falur fyrir 23 milljónir punda og segir Daily Express frá því að Frank Lampard, stjóri liðsins, hafi mikinn áhuga á að fá þennan úrúgvæska leikmann.
Talið er að Antonio Conte, þjálfari Inter, sé til í að selja Vecino en hann er með sín skotmörk fyrir sumarið og þarf hann pening til þess. Vecino hefur spilað 17 deilarleiki í vetur þar sem hann hefur skorað tvisvar og lagt upp eitt mark.
Chelsea fékk engan leikmann inn í síðasta glugga þrátt fyrir að félagsskiptabanni þeirra var aflétt. Liðið mætir Manchester United í kvöld í gífurlega mikilvægum leik.
Athugasemdir