Skondið atvik átti sér stað í 7-1 sigri Portadown á Queen's Unitveristy í írsku B-deildinni um helgina.
Adam Salley, framherji Portadown, slapp í gegn, renndi boltanum framhjá markmanninum og fór að fagna.
Salley var full fljótur á sig því að boltinn stoppaði í drullu á markteignum og fór ekki yfir marklínuna.
Sem betur fyrir hann var liðsfélagi hans Chris Lavery fljótur að átta sig og hann potaði boltanum í netið á meðan Salley sneri baki í markið og fagnaði.

Salley átti síðan eftir að skora sjálfur þrennu í 7-1 sigri Portadown í leiknum.
Smelltu hér til að sjá þetta kostulega atvik
Athugasemdir