Sancho vill ekki snúa aftur til Man Utd - Dumfries vill fara til Man Utd - Chelsea vill Osimhen
banner
   mið 17. mars 2021 20:10
Aksentije Milisic
Lengjubikar kvenna: Natasha með þrennu á átta mínútna kafla
Mynd: Keflavík
Keflavík 6-0 KR
1-0 Marín Rún Guðmundsdóttir ('28)
2-0 Ísabel Jasmín Almarsdóttir ('31)
3-0 Amelía Rún Fjeldsted ('45)
4-0 Natasha Moraa Anasi ('48)
5-0 Natasha Moraa Anasi ('51)
6-0 Natasha Moraa Anasi ('56)

Einn leikur var á dagskrá í A-deild í Lengjubikar kvenna en þar mættust Keflavík og KR.

Leikurinn var í riðli númer eitt og óhætt er að segja að Keflavík lenti ekki í neinum vandræðum.

Marín Rún Guðmundsdóttir kom liðinu yfir eftir 28. mínútna leik og í kjölfarið skoraði Ísabel Jasmín Almarsdóttir á 31. mínútu. Amelía Rún Fjeldsted kom stöðunni svo í 3-0 rétt fyrir hálfleik.

Staðan 3-0 í hálfleik og í þeim síðari setti Keflavík einnig þrjú mörk. Þau komu öll frá Natasha Moraa Anasi en hún gerði þrennu á átta mínútna kafla.

Leiknum lauk 6-0 og er Keflavík með níu stig eftir fjóra leiki. KR er á botni riðilsins án stiga.
Athugasemdir
banner
banner