Breiðablik vann sinn fyrsta leik í Bestu deildinni á þessu tímabili er þeir mörðu 1-0 sigur á ÍA á Kópavogsvelli í miklum hitaleik þar sem þjálfararnir voru í aðalhlutverki á hliðarlínunni. Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði þá tvö mörk í 3-1 sigri Fram á nýliðum Keflavíkur á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal.
Blikar unnu 1-0 sigur á ÍA á Kópavogsvelli en eina mark leiksins kom úr vítaspyrnu.
Skagamenn komu boltanum í netið á 19. mínútu er Markús Páll Ellertsson fékk boltann óvænt í teignum og kláraði vel, en var réttilega dæmdur rangstæður.
Gísli Eyjólfsson átti því næst fínasta skot sem Anton Ari Einarsson varði aftur fyrir endamörk.
Á 35. mínútu dró til tíðinda er Blikar fengu hornspyrnu. Boltinn inn á teiginn og í höndina á Viktori Jónssyni. Eftir endursýningu virðist það hafa verið rangur dómur en boltinn fór fyrst í lærið á Viktori og þaðan í höndina á honum.
Jóhann Ingi Jónsson skipti ekki um skoðun og var það Höskuldur Gunnlaugsson sem fór á punktinn og skoraði. Árni Marinó Einarsson var í boltanum en ekki nóg til að halda honum úti.
Skagamenn voru nálægt því að jafna stuttu síðar. Ómar Björn Stefánsson féll við í teignum en náði skoti sem fór í stöngina og þá átti Markús Páll skalla rétt yfir.
Á lokasekúndum hálfleiksins var Jóhann Ingi spjaldaglaður eftir rifrildi á hliðarlínunni þar sem Lárus Orri Sigurðsson lét Valgeir Valgeirsson heyra það og mætti Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, á svæðið til að svara Lárusi. Báðir þjálfarar sáu gult ásamt Rúnari Má Sigurjónssyni sem var líka að láta í sér heyra á bekknum.
Mikill hiti undir lok fyrri hálfleiks og staðan 1-0 þegar leikmenn gengu til búningsherbergja.
Snemma í síðari hálfleik var Gísli Eyjólfs hársbreidd frá því að skora gegn gömlu félögunum. Hann klobbaði Ásgeir Helga Orrason og reyndi síðan skotið en Anton Ari varði frábærlega.
Áfram héltu gestirnir í leit að marki. Á 76. mínútu átti Haukur Andri Haraldsson skot rétt fyrir utan teig sem hafnaði í þverslá. Svolítið stöngin út hjá Skagamönnum.
Undir lok leiks héldu lætin áfram á hliðarlínunni. Jóhann Ingi fékk algerlega nóg af því og rak Dean Martin, aðstoðarþjálfara ÍA, og Jón Guðna Fjóluson, aðstoðarþjálfara Blika, af velli.
Í uppbótartíma var Gísli nálægt því að jafna metin fyrir Skagamenn en Blikar komu til bjargar á ögurstundu. Honum var bara ekki ætlað að skora gegn Blikum í dag.
Lokatölur á Kópavogsvelli, 1-0, Blikum í vil sem eru með fjögur stig en ÍA með aðeins eitt stig.
Vuk Oskar afgreiddi Keflvíkinga
Vuk Oskar Dimitrijevic skoraði bæði mörk Fram í 3-1 sigri á nýliðum Keflavíkur á Lambhagavellinum í Úlfarsárdal.
Framherjinn skoraði fyrra mark sitt á 11. mínútu. Hann fékk frábæra sendingu, lék á Nacho Heras áður en hann setti boltann í hægra hornið.
Israel Garcia fékk svipað færi og Vuk aðeins nokkrum mínútum síðar en boltinn af varnarmanni og í hornspyrnu.
Keflavík ógnaði ekkert af viti í fyrri hálfleiknum og var staðan 1-0 Fram í vil í hálfleik.
Vuk Oskar var ekki lengi að bæta við öðru fyrir Fram en hann fékk sendingu frá Frey Sigurðssyni og setti boltann snyrtilega framhjá Ásgeiri Orra Magnússyni.
Keflvíkingar komu til baka á 77. mínútu er Eiður Orri Ragnarsson fékk boltann frá Halid Alghoul og kom honum í netið. Keflavík komið aftur inn í leikinn en Bjarni Páll Linnet Runólfsson drap vonir þeirra með frábæru marki í uppbótartíma.
Fram komið með fyrsta sigurinn og er nú með fjögur stig, en Keflavík áfram án stiga eftir tvo leiki.
Fram 3 - 1 Keflavík
1-0 Vuk Oskar Dimitrijevic ('11 )
2-0 Vuk Oskar Dimitrijevic ('49 )
2-1 Eiður Orri Ragnarsson ('77 )
3-1 Bjarni Páll Linnet Runólfsson ('92 )
Lestu um leikinn
Breiðablik 1 - 0 ÍA
1-0 Höskuldur Gunnlaugsson ('36 , víti)
Rautt spjald: ,Dean Edward Martin, ÍA ('90)Jón Guðni Fjóluson, Breiðablik ('90) Lestu um leikinn
Besta karla
| Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|---|---|---|
| 1. Víkingur R. | 9 | 8 | 1 | 0 | 29 - 5 | +24 | 25 |
| 2. KR | 9 | 7 | 1 | 1 | 33 - 20 | +13 | 22 |
| 3. Fram | 9 | 6 | 2 | 1 | 25 - 16 | +9 | 20 |
| 4. Breiðablik | 9 | 4 | 3 | 2 | 22 - 15 | +7 | 15 |
| 5. Valur | 9 | 5 | 0 | 4 | 18 - 17 | +1 | 15 |
| 6. ÍA | 9 | 3 | 3 | 3 | 12 - 16 | -4 | 12 |
| 7. Keflavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 11 - 12 | -1 | 11 |
| 8. KA | 8 | 3 | 1 | 4 | 9 - 10 | -1 | 10 |
| 9. Stjarnan | 9 | 2 | 1 | 6 | 15 - 21 | -6 | 7 |
| 10. Þór | 8 | 2 | 0 | 6 | 6 - 20 | -14 | 6 |
| 11. FH | 9 | 0 | 2 | 7 | 12 - 26 | -14 | 2 |
| 12. ÍBV | 8 | 0 | 2 | 6 | 8 - 22 | -14 | 2 |



