Óvissa með Rashford - Gordon orðaður við Bayern og Arsenal - Mac Allister og Gomez orðaðir við brottför
   fös 17. apríl 2026 23:37
Elvar Geir Magnússon
Þrír þjálfarar sáu rautt í leikjum dagsins
Aleksandar Linta.
Aleksandar Linta.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dean Martin.
Dean Martin.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það var hiti í boðvöngunum í 2. umferð Bestu deildarinnar og þrír þjálfarar sem fengu að líta rauða spjaldið. Aleksandar Linta þjálfari ÍBV fékk rautt eftir tap gegn Val og aðstoðarþjálfararnir í leik Breiðabliks og ÍA voru báðir sendir í sturtu.

Linta óð beint að Sigurði Hirti Þrastarsyni dómara eftir lokaflautið á Hlíðarenda þar sem Valur vann ÍBV 2-1. Í stúkunni furðuðu menn sig á hegðun Linta enda var dómgæslan svo sannarlega ekki í aðalhlutverki í leiknum.

„Góð frammistaða hjá Sigurði hér í kvöld. Man eftir einu atviki þegar hann dæmdi brot á Myles sem ég var ósammála en að öðru leiti hafði hann góða stjórn á leiknum," skrifaði Alexander Tonini fréttamaður Fótbolta.net sem gaf dómgæslunni 8 af 10.

Linta verður í stúkunni þegar ÍBV tekur á móti KR á fimmtudaginn, sumardaginn fyrsta.

Lestu um leikinn: Valur 2 -  1 ÍBV

Þá var hiti í boðvöngunum í lok leiks Breiðabliks og ÍA. Jóhann Ingi Jónsson lyfti upp rauðu á Jón Guðna Fjóluson aðstoðarþjálfara Breiðabliks og Dean Martin aðstoðarþjálfara ÍA.

„Að Deano og Jón Guðni hafi fengið rautt er algjör skandall. Þeir eru að rífast og að láta hvorn annan heyra það, það var ekkert annað að gerast. Hann (Twana fjórði dómari) klagar í dómarann og hann gefur þeim rautt spjald. Bara algjört bull, það á að segja þeim að slaka á og áfram gakk," sagði Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, í viðtali eftir leik.
Slapp
banner