Barca hefur áhuga á leikmanni Arsenal - Dias hugsar sér til hreyfings - Scott orðaður við Man Utd og Chelsea -
Kennie: Líður eins og ég sé 25 ára
Ólafur Ingi: Þurfum að vinna í andlega þættinum
Rúnar Kristins: Búnir að vinna í þessu í tvö og hálft ár
Svekktur fyrirliði Vals: Vorum ekki nógu góðar til að verðskulda sigur
Lárus Orri: Þá ertu annaðhvort í fallbaráttu eða í baráttu um Evrópusæti
Jói Kalli: Auðvitað er þetta á minni ábyrgð
Böddi: Hjálpaði til að FH var í einhverjum nýjum lit af búning
Skoraði sigurmarkið og grínaðist með samherjann - „Rósey hendir einhverju góðu á hana“
Ray Anthony: Grenjum í kvöld
Maggi: Ákall á Mosfellinga
Brynjar Björn: Það er klárt brot á Óla
Heimir Guðjóns: Hann á skilið freyðivín frá mér
Badu: Ég held að ástæðan sé mun einfaldari en metnaðarleysi
„Þeir skapa nánast ekki færi í fyrri hálfleik, skora samt tvö mörk úr þessum hornum sínum"
Mattías Kjeld: Valur gat ekki lofað mér mínútum
Nenad: Búið að vera töfrasirkús
Jóhann Birnir: Eitthvað kæruleysi hjá öllum
„Þá er ég ekki það grænn og vitlaus að ég get alltaf hrósað okkur fyrir frábært spil og ægilega óheppnir"
Borja: Allt of dýrt að fá á sig mörk úr föstum leikatriðum
Gunnar Heiðar: Þetta er erfiðasta fæðing sem ég hef séð
   fös 17. apríl 2026 20:53
Kári Snorrason
Segir þriðja liðið það slakasta á vellinum - „Strákur alinn upp í Kópavogi og skilur ekki norðlenskuna“
Lárus Orri spjaldaður.
Lárus Orri spjaldaður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fundur Jóhanns Inga, dómara, við fyrirliðana tvo í hálfleik.
Fundur Jóhanns Inga, dómara, við fyrirliðana tvo í hálfleik.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Ósáttur með vítadóminn.
Ósáttur með vítadóminn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍA laut í lægra haldi gegn Breiðabliki í Bestu deildinni fyrr í kvöld. Leikar enduðu 1-0 fyrir Kópavogsliðinu. Mikill hiti var í boðvanginum í leiknum og fengu aðstoðarþjálfarar beggja liða reisupassann. Þá fengu aðalþjálfararnir báðir að líta gula spjaldið.

Lárus Orri Sigurðsson, þjálfari ÍA, ræddi við Fótbolta.net að leik loknum.

Lestu um leikinn: Breiðablik 1 -  0 ÍA

Risastór mistök
„Ég er hundfúll með þriðja liðið í þessum leik. Í fyrsta lagi á þetta ekki að vera víti, boltinn fer í líkama Viktors og upp í hendina á honum en hann dæmir víti á það. En þá verður hann að dæma víti í seinni hálfleik þegar boltinn er á leiðinni í netið og fer í hendina á Höskuldi.

Þetta eru risastór mistök og fyrir utan þau að þá var leikstjórnunin alls ekki nægilega góð. Allt of mikil dramatík og of mikil læti. Auðvitað er ástríða í mönnum; Hjá þjálfarateyminu og leikmönnum.“


Twana ekki nægilega góður
„Það er gert alltof mikið úr þessu. Einhverjir fundir í hálfleik með fyrirliðum og þjálfurum. Hann Twana (Khalid Ahmed) fjórði dómari er bara alls ekki nægilega góður í þessu. Við höfum verið með hann áður.

Að Deano og Jón Guðni er algjör skandall. Þeir eru að rífast og að láta hvorn annan heyra það, það var ekkert annað að gerast. Hann (Twana) klagar í dómarann og hann gefur þeim rautt spjald. Bara algjört bull, það á að segja þeim að slaka á og áfram gakk.

Ég er tiltölulega svekktur með að fara ekki með neitt héðan en viðbrögðin í seinni hálfleik voru góð. Lélegasta liðið á vellinum var þriðja liðið.“


Valgeir skilur ekki norðlensku
Það ætlaði allt um koll að keyra undir lok fyrri hálfleiks. Valgeir Valgeirsson og Lárus Orri létu einhver orð falla við hvorn annan og Valgeir sakaði Lárus um að kalla sig tussu. Við það skarst Ólafur Ingi Skúlason, þjálfari Blika, inn í leikinn og lét Lárus heyra það.

Báðir þjálfarar fengu gult spjald að launum, sem og Rúnar Már Sigurjónsson, sem er meiddur, og er í liðsstjórn ÍA.

„Það var einhver dramatík í gangi þar. Einhver Valgeir kemur upp að mér og sakar mig um að kalla sig ljótum orðum. Þetta er strákur sem er alinn hér upp í Kópavogi og skilur norðlenskuna nægilega vel. Ég veit ekki hvað einhver fimmtugur kall ætti að kalla einhvern leikmann þessum orðum sem hann segir að ég hafi gert. En ég lét hann heyra það á norðlensku.“

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Slapp