Ray: Smá hökt sem við erum að ganga í gegnum


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Leikur Grindavíkur og Fylkis fór fram í 9. umferð Lengjudeildar karla á Stakkavíkurvellinum í dag. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Ray Anthony Jónsson, þjálfara Grindavíkur, eftir leikinn.
„Þetta er gríðarlega svekkjandi tap. Fyrri hálfleikurinn var ekki alveg eins og við ætluðum að spila og þróaðist að við vorum bara í varnarfærslum. Seinni hálfleikurinn var allt annar hjá okkur og þar spiluðum við vel.''
Grindavík hefur aðeins skorað eitt mark í síðustu fjórum leikjum liðsins. Er það eitthvað til þess að hafa áhyggjur af?
„Er þetta ekki bara smá hökt sem við erum að ganga í gegnum. Við hljótum nú að fara að ná að skora einhver mörk í þessum leikjum. Við ætlum að leggja mikla áherslu á að fjölga í sókninni hjá okkur.''
Viðtalið í heild sinni má finna í spilaranum að ofan.



