Fotbolti.net
17.06.26 - 17:14
Sigurjón Árni Torfason

Sáttur Ívan Óli: Ég fór að grenja úr gleði

Auglýsing
Ívans Óla Santos spilaði sinn fyrsta keppnisleik í tæplega þrjú ár

Ívans Óla Santos spilaði sinn fyrsta keppnisleik í tæplega þrjú ár

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
ÍR tók á móti Gróttu í skemmtilegum leik í 9. umferð Lengjudeildar karla í dag. Leikurinn var fjörugur frá upphafi og mikið um færi hjá báðum liðum. Bæði lið spiluðu sóknarsinnaðan fótbolta og var leikurinn oft opinn og skemmtilegur fyrir áhorfendur. Það var því nóg að gerast á vellinum í leik þar sem liðin börðust af krafti fyrir stigunum.
Lestu um leikinn: ÍR 2 - 1 Grótta

ÍR hafa verið í miklu basli í upphafi tímabils og höfðu tapað 3 síðustu leikjum sínum fyrir þennan leik.

„Það er kominn tími sko, við erum ekki alveg búnir að fá allt of mikið af mörkum á okkur upp á síðkastið sko, en þetta var svona alvöru iðnaðarsigur, þannig að þetta var bara mjög flott.”


Þetta var fyrsti keppnisleikur í deild hjá Ívani Óla Santos í tæplega þrjú ár, eða í 1.005 daga. Hann kom inn á sem varamaður á 81. mínútu og tók það hann aðeins fjórar mínútur að láta til sín taka þegar hann skoraði sigurmark ÍR gegn sínu gamla félagi, Gróttu.

„Það var alltaf að fara að gerast. Ég einmitt sagði það við strákana á bekknum, ég ætlaði einmitt að skora í dag sko, þannig að það var bara geðveikt. Geðveikt þegar það gerðist og einmitt fór bara að grenja úr gleði áðan eftir leik. Þetta var bara geggjað”. sagði Ívan við fréttamann Fótbolti.net eftir leik.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.