Stjarnan fengið tvo heim úr atvinnumennsku - „Öflugir menn sem styrkja klúbbinn“

„Fórum þangað til að klára ákveðið verkefni og við gerðum það.“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stjarnan vann einvígið samtalst 5-3.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðmundur Kristjánsson fór meiddur af velli í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Árni Vilhjálmsson styrkir feiknarsterka sóknarlínu Garðbæinga.

Mynd: Stjarnan

Ari Leifsson var tilkynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar í gær.

Mynd: Instagram/Stjarnan

Ekki heyrt af áhuga KA á Andra Rúnari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Fórum þangað til að klára ákveðið verkefni og við gerðum það.“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Garðbæingar höfðu unnið fyrri leik liðanna 3-1 á Samsungvellinum í síðustu viku og fara því áfram samanlagt 5-3.
Fótbolti.net ræddi við Jón Þór Hauksson, þjálfara Stjörnunnar, um leikinn í gær, væntanlega mótherja í Evrópu ásamt komu Árna Vilhjálmssonar og Ara Leifssonar.

Sambandsdeildin: Stjörnumenn áfram eftir flotta endurkomu í Færeyjum
„Við fórum þangað til að klára ákveðið verkefni og við gerðum það. Ég er hæstánægður með það,“ segir Jón Þór og heldur áfram.
„Mér fannst við vera með góð tök á leiknum allan tímann. Það kom meðbyr með Færeyingunum á fimm mínútna kafla í seinni hálfleik og þeir nýttu sér það afskaplega vel.“
„Að öðru leyti fannst mér við vera betri aðilinn allt einvígið og fórum sanngjarnt áfram. Frábær viðbrögð minna leikmanna við því að lenda undir í gær. Við svöruðum frábærlega og þetta var í rauninni aldrei í hættu.“
Mæta Finnum í 2. umferð
Stjarnan mætir finnska liðinu Ilves í næstu umferð. Liðið endaði í 3. sæti finnsku úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð.
„Mér líst nokkuð vel á þá. Við eigum eftir að kafa dýpra í liðið, það kom bara í ljós í gær hverjum við myndum mæta. Við eigum leik á móti KR á sunnudaginn, öll okkar orka fer í þann leik. Svo förum við í það að skoða Finnana. Þetta verður allavega annað hörkuverkefni.“
Gummi meiddur í nára
Guðmundur Kristjánsson, fyrirliði Stjörnunnar, neyddist til að fara af velli eftir rúmlega fimmtán mínútna leik í gær. „Hann fékk aðeins í nárann. Það er vonandi smávægilegt, hann ætti að vera klár fljótlega.“
Hvernig er annars staðan á mönnum?
„Damil (Dankerlui) hefur verið að glíma við meiðsli og Ibrahim (Turay) hefur verið frá síðan að ég kom. Aðrir eru heilir og í góðu standi,“ segir Jón Þór.
Tvær öflugar liðsstyrkingar
Stjarnan tilkynnti um komu þeirra Árna Vilhjálmssonar og Ara Leifssonar í vikunni. Báðir koma þeir heim úr atvinnumennsku, Ari frá Danmörku en Árni frá Sádi-Arabíu.
„Við erum að fá öfluga leikmenn sem styrkja klúbbinn. Þeir eru ekki bara góðir leikmenn heldur líka báðir frábærir karakterar. Þeir hjálpa okkur að lyfta félaginu á hærra plan.“
Gætu þeir komið við sögu gegn KR á sunnudaginn?
„Það fer eftir leikheimild, það á eftir að koma í ljós. Það þyrfti þá að klárast í dag, smá óvissa með það. Þeir eru báðir í góðu standi en það er langt síðan þeir spiluðu leik síðast og vantar kannski aðeins upp á leikformið. Við þurfum aðeins að meta stöðuna á því hvernig við komum þeim inn í okkar leik,“ segir Jón.
Ari er kominn með leikheimild og getur verið til taks en Árni á enn eftir að fá heimild.
Stjarnan er með gífurlega breidd sóknarlega. Jón Þór var spurður hvernig hann sæi Árna koma inn í liðið.
„Það er gott að hafa mikla breidd af frábærum sóknarmönnum. Hann kemur inn í harða og mikla samkeppni um stöðuna í liðinu.“
Ekki heyrt af áhuga KA á Andra Rúnari
Kristján Óli Sigurðsson greindi frá því í Þungavigtinni að Andri Rúnar Bjarnason væri að ganga í raðir KA, er það rétt?
„Ekki svo ég viti, það hefur ekki ratað inn á mitt borð.“
Það er þá lítið til í þessu?
„Ef þú spyrð mig, já.“

Stjarnan vann einvígið samtalst 5-3.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Guðmundur Kristjánsson fór meiddur af velli í gær.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Árni Vilhjálmsson styrkir feiknarsterka sóknarlínu Garðbæinga.

Mynd: Stjarnan

Ari Leifsson var tilkynntur sem nýr leikmaður Stjörnunnar í gær.

Mynd: Instagram/Stjarnan

Ekki heyrt af áhuga KA á Andra Rúnari.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð



