Fotbolti.net
17.08.26 - 17:00
Kári Snorrason

Awoniyi til Coventry (Staðfest)

Awoniyi til Coventry (Staðfest)
Canon

Mynd: Coventry

Coventry hefur keypt nígeríska framherjann Taiwo Awoniyi frá Nottingham Forest. Kaupverðið er sagt vera um 17 milljónir punda.

Þessi 29 ára framherji hefur skorað 23 mörk í 103 leikjum fyrir Forest. Hann gekk í raðir Forest frá Union Berlin fyrir fjórum árum síðan.

Nýliðarnir eru búnir að krækja í sex aðra leikmenn það sem af er sumars fyrir um 90 milljónir punda. Caleb Yirenkyi, Carl Rushworth, Loum Tchaouna, Aurèle Amenda, Frank Onyeka og Gustavo Hamer eru allir komnir til félagsins.

Frank Lampard er þó ekki hættur á markaðinum og er félagið komið langt í viðræðum um kaup á Sidiki Cherif, 19 ára sóknarmanni Fenerbahce.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.