Fotbolti.net
17.08.26 - 19:23
Ívan Guðjón Baldursson

Busquets kominn aftur til Barcelona (Staðfest)

Andstæðingar í El Clásico en unnu EM og HM saman.

Andstæðingar í El Clásico en unnu EM og HM saman.

Canon

Mynd: EPA

Miðjumaðurinn goðsagnakenndi Sergio Busquets er kominn aftur heim til Barcelona. Hann hefur verið ráðinn sem aðstoðarþjálfari fyrir Juliano Belletti, annan fyrrum leikmann Barcelona sem starfar í dag sem aðalþjálfari varaliðsins.
Það er liðið tæpt ár frá því að Busquets lagði fótboltaskóna á hilluna en hann lék fyrir Barcelona í 18 ár áður en hann flutti til Bandaríkjanna til að ljúka ferlinum hjá Inter Miami.

Busquets mun vera aðstoðarþjálfari varaliðsins á meðan hann klárar þjálfaranámið og eru fjölmargir Börsungar sem hafa trú á að hann gæti reynst framtíðarþjálfari aðalliðsins.

Busquets er 38 ára gamall og er af mörgum talinn vera óheppinn að hafa aldrei tekist að hreppa Ballon d'Or verðlaunin eftirsóttu, enda var hann allan ferilinn í samkeppni við Cristiano Ronaldo og Lionel Messi þegar þeir voru upp á sitt besta.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.