17.08.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Fær leyfi til að skipta til Barcelona

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Portúgalski bakvörðurinn Joao Cancelo er búinn að semja við sádi-arabíska stórveldið Al-Hilal um riftingu á samningi.
Cancelo er að skipta yfir til Barcelona þar sem hann lék á láni á seinni hluta síðustu leiktíðar og stóð sig vel undir stjórn Hansi Flick.
Portúgalinn var afar ósáttur síðasta haust þegar Al-Hilal ákvað að afskrá hann úr leikmannahópinum í sádi-arabísku deildinni vegna takmarkana um fjölda erlendra leikmanna í hóp. Hann var lánaður til Barcelona í kjölfarið og hefur ekki áhuga á að spila annan leik fyrir Al-Hilal.
Fabrizio Romano greinir frá þessum fregnum og segir að Cancelo verði formlega kynntur til leiks sem leikmaður Barca á næstu dögum. Hann er búinn að setja „here we go!" stimpilinn fræga á félagaskiptin.