17.08.26 - 15:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gríðarlega áhugaverður leikmaður klárar tímabilið með nýliðunum (Staðfest)

Lék síðast á Íslandi fyrir átta árum.

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn hafi lokað síðasta miðvikudagskvöld þá voru nýliðarnir í Grindavík/Njarðvík að fá inn nýjan leikmann - öllum nauðsynlegum pappírum var skilað inn fyrir gluggalok.
Stephanie Bukovec er komin með félagaskipti og má spila gegn Fram á fimmtudag, hún er þrítug og þekkir að spila á Íslandi eftir að hafa leikið seinni hluta tímabilsins 2018 með Þór/KA. Hún lék sex deildarleiki með Þór/KA og fimm Evrópuleiki.
Stephanie er í grunninn markvörður og gæti orðið fimmti markvörðurinn sem spilar með Grindavík/Njarðvík á tímabilinu. Hún fer í samkeppni við Taylor Fox sem átti góðan leik gegn Breiðabliki í síðustu umferð. Auk Taylor hafa þær Genevieve Jae Crenshaw, Lauren Kellett og Eva Ýr Helgadóttir staðið í marki nýliðanna í Bestu deildinni á tímabilinu. Genevieve er farin til Portúgals, Lauren er hætt í fótbolta og Eva leysti af í einum leik.
Eins og áður kom fram er Stephanie í grunninn markvörður, en hún tók þá ákvörðun síðasta vetur að prófa að spila sem útileikmaður og spilaði sem framherji í hálf-atvinnumannaliði í Kanada. Hún hins vegar kemur til Íslands og semur sem markvörður, en það er aldrei að vita nema hún spreyti sig eitthvað framar á vellinum.
Hún er fædd í Kanada en lék á sínum tíma fjóra landsleiki fyrir Króatíu. Hún er ansi öflug með boltann eins og sjá má í Instagram færslunum hér að neðan.

Lokakaflinn í Bestu deildinni er framundan hjá Grindavík/Njarðvík og bikarúrslitaleikur gegn Þrótti.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Breiðablik | 15 | +28 | 36 |
| 2 | FH | 15 | +24 | 33 |
| 3 | ÍBV | 15 | -2 | 24 |
| 4 | Stjarnan | 15 | +4 | 23 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 15 | -6 | 19 |
| 6 | Þór/KA | 15 | -2 | 18 |
| 7 | Þróttur R. | 15 | -4 | 18 |
| 8 | Fram | 15 | -13 | 16 |
| 9 | Valur | 15 | -13 | 13 |
| 10 | Víkingur R. | 15 | -16 | 11 |