17.08.26 - 12:22
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Ída Marín til Hammarby (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sænsku bikarmeistararnir hafa gengið frá kaupum á Ídu Marín Hermannsdóttur sem heldur til Svíþjóðar frá FH. Lokaleikur hennar með FH var gegn Breiðabliki á laugardag. Samningur hennar við Hammarby gildir út 2030.
Ída kveður FH sem markahæsti leikmaður Bestu deildarinnar á tímabilinu.
Hún er landsliðskona, fædd árið 2002, og hefur spilað virkilega vel með FH. Hún hefur átt gott ár, var í byrjunarliði landsliðsins síðasta vetur og stóð sig vel.

Hún kom í FH frá Val eftir tímabilið 2023 og skoraði alls nítján mörk fyrir FH í 30 deildarleikjum, þar af þrettán í fjórtán leikjum á þessu ári.
„Óskum henni góðs gengis og þökkum henni hjartanlega fyrir veru sína í Fimleikafélaginu í bili," segir í tilkynningu FH.
Hjá Hammarby hittir Ída fyrir landsliðskonuna Guðrún Arnardóttur. Skagamaðurinn Arnór Smárason er yfirmaður fótboltamála hjá kvennaliði Hammarby. Hammarby er í 2. sæti sænsku deildarinnar, tveimur stigum á eftir Häcken þegar tólf umferði eru eftir.