Fotbolti.net
17.08.26 - 15:15
Elvar Geir Magnússon

Ipswich fær Ouattara og Enciso frá Strassborg (Staðfest)

Ouattara í leik með Strasbourg.

Ouattara í leik með Strasbourg.

Canon

Mynd: EPA

Ipswich Town hefur gengið frá kaupum á miðjumanninum Abdoul Ouattara frá franska félaginu Strasbourg.

Fílabeinsstrendingurinn, sem er 20 ára, skrifaði undir fimm ára samning og er keyptur fyrir 17 milljónir punda. Gary O'Neil, stjóri Ipswich, þekkir leikmanninn vel þar sem hann stýrði franska liðinu síðasta tímabil.

„Enska úrvalsdeildin er besta deild í heimi og um leið og ég vissi að tækifærið var til staðar, að spila í Englandi undir stjórn stjóra sem ég hef þegar notið þess að vinna með, þá greip ég það,“ sagði Ouattara.
Enciso snýr aftur á Portman Road
Þá hefur Ipswich keypt sóknarleikmanninn Julio Enciso, einnig frá Strasbourg. Enciso er 22 ára og lék með Ipswich á láni frá Brighton í sex mánuði árið 2025.

O'Neil, sem áður stýrði Bournemouth og Wolves og tók við á Portman Road í sumar og lagði mikla áherslu á að fá leikmanninn til sín á ný.

Nýliðar Ipswich byrjar tímabil sitt í ensku úrvalsdeildinni heima gegn Sunderland 22. ágúst.


Enciso í leik með Paragvæ.

Enciso í leik með Paragvæ.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.