17.08.26 - 08:25
Ívan Guðjón Baldursson
Lazio fær ítalskan landsliðsmann frá meisturunum (Staðfest)

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lazio er búið að ganga frá félagaskiptum fyrir ítalska landsliðsmanninn Davide Frattesi sem kemur á lánssamningi frá Inter.
Lazio borgar 5 milljónir evra til að fá Frattesi á láni og getur keypt miðjumanninn sókndjarfa fyrir 10 milljónir til viðbótar, en Frattesi er með tvö ár eftir af samningi sínum við Inter.
Frattesi kom við sögu í 122 leikjum á þremur árum hjá Inter og skoraði 15 mörk í fyrstu 89 leikjunum.
Hann á 8 mörk í 34 A-landsleikjum og gæti reynst mikilvægur hlekkur í liði Lazio sem leikur undir stjórn Gennaro Ivan Gattuso.
„Ég hef alltaf hugsað til ykkar sem systkina minna. Ég mun alltaf vera ykkar fyrsti stuðningsmaður," skrifaði 26 ára Frattesi í kveðju til Inter á samfélagsmiðlum.

Il nostro nuovo n.1??6?? pic.twitter.com/gmFWjlZ7IS
— S.S.Lazio (@OfficialSSLazio) August 14, 2026