Fotbolti.net
17.08.26 - 09:11
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Lucumi til Juventus (Staðfest)

Lucumi, til hægri.

Lucumi, til hægri.

Canon

Mynd: EPA

Ítalska félagið Juventus hefur keypt kólumbíska miðvörðinn Jhon Lucumi frá Bologna. Juventus greiðir Bologna 20 milljónir evra fyrir Lucumi.

Lucumi er 28 ára gamall og hefur leikið með Bologna frá árinu 2022. Hann varð meðal annars ítalskur bikarmeistari með félaginu. Hann gekkst undir læknisskoðun í gær.
Varnarmaðurinn er fastamaður í kólumbíska landsliðinu og lék alla leiki þess á heimsmeistaramótinu í sumar.

Lucumi er mikil styrking fyrir Juventus sem ætlar sér aftur í Meistaradeildina. Liðið hafnaði í sjötta sæti á síðustu leiktíð, aðeins tveimur stigum frá fjórða sætinu.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.