Sigurður Egill stimplaði sig inn eftir meiðsli: Spurðu vinkilinn


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég er í skýjunum að hafa landað þessum sigri" sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, eftir 3-1 sigur á Fylki á heimavelli.
„Fylkismenn eru gríðarlega sterkir og ég held að þetta hafi verið sanngjarnt þegar upp er staðið"
Venni var ánægður með frammistöðuna.
„Þetta var svolítið klókur leikur hjá okkur, við erum að skipta um kerfi alveg tvisvar í leiknum. Strákarnir stóðu sig frábærlega að lesa aðstæðurnar. Fylkismenn náðu að pressa okkur svolítið mikið þannig að við náðum raunverulega ekki að spila okkar besta sóknarleik. Við breyttum á augabragði í gott low block skyndisóknarlið. Svona eina svekkelsið er að hafa ekki klárað leikinn á þeim sóknum. Í minningunni fengum við tíu eða tólf góðir skyndisóknarsénsa, þar sem hefði verið gott að ná þriðja markinu áður en þeir komast í tvö eitt. Þannig að þetta var hörkuspennandi í hálfleik."
Venni kom með fjórar breytingar á 65. mínútu, var það breyting á kerfinu?
„Ég hugsaði að Fylkismenn voru að nota mjög mikið af sömu mönnum og í síðasta leik. Mér finnst ég eiga stóran hóp, þannig ég var búin að plana að nýta skiptingarnar vel. Þannig að ég ætlaði að fá ferska leggi á móti þeim, síðasti leikur var á fimmtudaginn þannig að menn voru þreyttir í löppunum. Þetta átti nú að vera þreföld skipting en í miðri skiptingu þá meiddist einn."
„Baldur meiddist, ég held að hann hafi ekki tognað. Ég held að hann sé klár í næsta leik."
Sigurður Egill byrjaði í fyrsta skipti eftir löng meiðsli.
„Spurðu vinkilinn. Hann byrjaði á því að stimpla sig inn með því að kontra hann í skeytinn, þetta var beautiful. Siggi er búin að hlaupa eins og skepna þessar sex sjö vikur sem hann var frá, þannig að ég hafði engar áhyggjur af forminu hjá honum. Þetta var spurning hvort að hnéð var klárt og mér sýndist á þessu skoti að það sé í lagi með hann."
Fullt viðtal í spilaranum fyrir ofan
