Fotbolti.net
17.08.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Suárez alltof dýr fyrir Börsunga

Suárez alltof dýr fyrir Börsunga
Canon

Mynd: EPA

Spánarmeistarar Barcelona voru að skoða Luis Suárez framherja Sporting CP í sumar en eru hættir við kaupin.
Börsungar settu sig í samband við umboðsmann Suárez sem greindi frá því að eina leiðin til að kaupa skjólstæðing sinn úr röðum Sporting væri að virkja 80 milljón evra söluákvæði í samningi hans við portúgalska stórveldið.

Það er alltof há upphæð fyrir Barca sem er búið að kaupa Anthony Gordon, Karim Adeyemi, Jesse Bisiwu og Hamza Abdelkarim í sumar.

Sporting ætlar ekki að lækka verðmiðann á Suárez, sem er 28 ára gamall og með fjögur ár eftir af samningi. Hann kom með beinum hætti að 47 mörkum í 53 leikjum í öllum keppnum á síðustu leiktíð.

Börsungar eru í leit að framherja og ætla að snúa sér að öðrum skotmörkum. Ferran Torres og Robert Lewandowski eru báðir farnir og því eiga meistararnir í hættu á að vera ekki með framherja þegar þeir mæta til leiks í fyrstu umferð nýs deildartímabils næstu helgi.

PSG kaupir Ferran frá Barcelona (Staðfest)
TENGT EFNI

PSG kaupir Ferran frá Barcelona (Staðfest)

Suárez alltof dýr fyrir Börsunga
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.