Fotbolti.net
17.08.26 - 22:22
Kári Snorrason

Þakkar vini sínum Holtan fyrir klúðrið - „Sá að Aron horfði í þetta horn þrisvar“

Auglýsing
Ólafur Örn Ásgeirsson.

Ólafur Örn Ásgeirsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
„Þetta er vissulega svekkjandi jafntefli. Við komumst í 2-1 og vorum þannig séð með unninn leik. Mjög pirrandi að missa þetta niður og fá jöfnunarmark á sig fimm mínútum seinna,“ sagði Ólafur Örn Ásgeirsson, markvörður HK, eftir 2-2 jafntefli gegn Aftureldingu í Lengjudeildinni fyrr í kvöld.

Ólafur varði vítaspyrnu undir lok fyrri hálfleiks eftir að Gunnar Freyr Róbertsson dómari benti á punktinn og dæmdi hendi á Aron Kristófer Lárusson.
Lestu um leikinn: Afturelding 2 - 2 HK
„Frá mínu sjónarhorni var þetta aldrei hendi. En ég varði vítið þannig þetta kom ekki að sök. Sáttur með það.“

Ekki nóg með að verja þá greip Ólafur vítaspyrnu Arons Elís Sævarssonar. „Ég sá að hann var búinn að horfa í þetta horn þrisvar áður en hann skaut þangað. Ég beið aðeins eftir honum og þetta var bara lélegt víti.“

Afturelding komst í mörg góð færi en Ólafur varði oft og tíðum vel „Ég náði að gera það (loka búrinu). En slapp svo með skrekkinn eftir skógarúthlaup. En ég þakka Joachim Holtan vini mínum fyrir það,“ sagði Óli óg átti þar við um klúður Norðmannsins sem var einn gegn nánast opnu marki.

Þakkar vini sínum Holtan fyrir klúðrið.

Þakkar vini sínum Holtan fyrir klúðrið.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.