Fotbolti.net
17.09.04 - 07:00

Real Madrid fá fjórða Englendinginn (Staðfest)

Hafa fengið samkeppni

Hafa fengið samkeppni

Canon
Real Madrid hafa fengið til sín þriðja enska leikmanninn í sumar en það er enginn annar en Niall Mason, 7 ára skólastrákur frá Brighton! Ekki hefur kaupverðið fengist staðfest en fastlega má gera ráð fyrir því að það sé ekkert.
Að öllu gamni slepptu var faðir stráksa, Russell, í viðskiptaferð í Madrid þegar hann heyrði um hina mögnuðu unglingastarfsemi Real og hann bauð ekki boðanna heldur fór og sótti strákinn. Þeir fóru svo saman til Madrid þar sem hann æfði með barnaliðinu og þjálfurnum leyst svo vel á hann að hann er genginn til liðs við Real Madríd.

Fjölskyldan er nú öll flutt til Madríd svo strákurinn geti tekist á við þessa nýju áskorun! "Við erum glöð yfir því að fá slíkt tækifæri, á leyfa Niall að æfa með jafn frábæru liði og Real Madrid er" sagði faðir stráksins.

"Eftir tvær vikur mun hann byrja að æfa með liðinu. Ég vona að hann muni aðlagast fljótt þeim breitingum sem orðið hafa og einn daginn að hann verði meðal þeirra bestu."

Fyrir hjá Real Madrid eru Englendingarnir, David Beckham, Jonathan Woodgate og Michael Owen.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.