Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
banner
   fim 17. september 2020 18:25
Aksentije Milisic
Evrópudeildin: KR féll úr leik í Tallin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Flora 2 - 1 KR
1-0 Rauno Sappinen ('7 )
2-0 Michael Lilander ('37 )
2-1 Kristján Flóki Finnbogason ('75 )
Rautt spjald: Ægir Jarl Jónasson, KR ('58)

KR mætti Flora í Tallin í 2. umferð forkeppni Evrópudeildarinnar í dag.

Heimamenn byrjuðu leikinn betur og var það Rauno Sappinen sem skoraði á 7. mínútu. Hálftíma síðar tvöfaldaði Michael Lilander forystu Flora og róðurinn því orðinn þungur fyrir KR.

Á 58. mínútum fékk Ægir Jarl Jónasson sitt annað gula spjald og því rautt og KR einu manni færri síðasta hálftímann eða svo.

Liðið gafst ekki upp og Kristján Flóki Finnbogason skoraði þegar fimmtán mínútur voru til leiksloka og gaf KR-ingum von.

Nær komust þeir hins vegar ekki og því er KR úr leik í Evrópudeildinni en í ár fer einungis fram einn leikur í hverri umferð í forkeppninni en ekki tveir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner