Fotbolti.net
17.09.26 - 15:53
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

FH Íslandsmeistari í 2. flokki en enginn mætti með bikar - Framkvæmdastjóri KSÍ biðst afsökunar

Enginn frá KSÍ mætti í gær.

Enginn frá KSÍ mætti í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Í gær varð FH Íslandsmeistari í 2. flokki kvenna þegar liðið vann stórsigur á Breiðabliki í lokaleik sínum í mótinu. FH þurfti jafntefli eða sigur á Eikarvellinum í Kópavogi til að tryggja Íslandsmeistaratitilinn.

Það gleymdist hins vegar hjá KSÍ að mæta á staðinn með verðlaunapening og Íslandsmeistarabikar.

Friðþjófur Helgi Karlsson, faðir leikmanns FH, birtir færslu á Facebook síðu sinni í dag þar sem hann lýsir yfir óánægju sinni á því að enginn frá KSÍ hefði mætt til að verðlauna liðið. Hann merkir framkvæmdastjóra KSÍ, Eystein Pétur Lárusson, í færslunni.
Úr færslu Friðþjófs Helga
„Sú stund að heyra lokaflautið gella og fá að lyfta bikarnum saman úti á velli er uppskeran eftir ómælda vinnu og fórnir. En sú stund var tekin af stelpunum okkar í gær.

Þrátt fyrir að KSÍ hafi vitað nákvæmlega hvað var undir mætti enginn fulltrúi frá sambandinu á svæðið. Enginn bikar, engir verðlaunapeningar, engin umgjörð.

Maður hlýtur óneitanlega að velta því fyrir sér hvað veldur svona mistökum. Getur verið að þetta sé á einhvern hátt tengt virðingu fyrir kvennaknattspyrnunni? Myndi þetta gerast hjá strákum?

Eysteinn Pétur Lárusson, framkvæmdastjóri KSÍ – þetta er ykkur til skammar!

Klúður KSÍ breytir því þó ekki að þessar öflugu FH-stelpur eru Íslandsmeistarar. Þær eiga allt hrós skilið fyrir sitt afrek og frammistöðu í sumar. Til hamingju með titilinn!"
skrifar Friðþjófur Helgi.

Svar framkvæmdastjórans
Eysteinn Pétur svaraði færslunni og baðst afsökunar og sagði um mistök hjá sambandinu að ræða. Hann segir að lært verði af mistökunum og þau leiðrétt strax á morgun.

„Til hamingju með FH stelpurnar

Hér voru klárlega gerð mistök í öllu atinu sem fylgir úrslitaleikjunum í öllum flokkum og starfsfólki hér innandyra líður ekki vel yfir því

Ætla ekki að fara nánar út í það hér hvað gerðist en fyrst að þú taggaðir mig inní þennan póst get ég fullvissað þig um að innan við klst frá því leikurinn kláraðist og mistökin voru orðin ljós var komin afsökunarbeiðni á formann Knd FH sem og á þjálfara 2. flokks kvenna sem átti einnig að skila því til Íslandsmeistarana.

Við munum leiðrétta þessi mistök strax á mrg og fáum þá tækifæri til að biðjast afsökunar í eigin persónu
Mistökin hafa verið gerð og því miður verður þeim ekki breytt, en við getum lært af þessu og það verður gert,"
skrifar Eysteinn.

Eysteinn Pétur Lárusson hefur beðist afsökunar.

Eysteinn Pétur Lárusson hefur beðist afsökunar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH Íslandsmeistari í 2. flokki en enginn mætti með bikar - Framkvæmdastjóri KSÍ biðst afsökunar
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.