17.10.26 - 19:14
Ívan Guðjón Baldursson
Aron Einar fór meiddur af velli - Titilbaráttuliðin unnu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Guðmundur Svansson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
Það var mikið af leikjum í dag hjá Íslendingunum sem leika erlendis og var Aron Einar Gunnarsson í byrjunarliði Qatar SC sem gerði jafntefli.
Fyrrum landsliðsfyrirliðinn meiddist eftir 25 mínútna leik og þurfti skiptingu, en lokatölur urðu 2-2 og er Qatar SC í næstneðsta sæti katörsku deildarinnar - með 3 stig eftir 6 umferðir.
Í Tékklandi fékk U21 landsliðsmaðurinn Hilmir Rafn Mikaelsson að spila síðustu mínúturnar í 1-0 sigri Sigma Olomuc í efstu deild. Sigma er í 2.-4. sæti deildarinnar þar sem þrjú lið sitja jöfn með 20 stig eftir 11 umferðir - sjö stigum á eftir toppliði Slavia Prag sem er enn taplaust.
Í efstu deild í Svíþjóð lék Hjörtur Hermannsson allan leikinn í 2-2 jafntefli hjá Göteborg gegn AIK. Kolbeinn Þórðarson var ekki í hóp vegna leikbanns og sigla bæði lið áfram lygnan sjó um miðja deild. Gautaborg á litla sem enga möguleika á Evrópusæti.
Fyrr í dag unnu Noregsmeistarar Viking heimaleik gegn Fredrikstad og var Amin Cosic ónotaður varamaður. Viking er í harðri titilbaráttu við Bodö/Glimt, þar sem bæði lið eiga 56 stig eftir 23 umferðir.
Viðar Ari Jónsson var að sama skapi ónotaður varamaður í liði HamKam sem tapaði á heimavelli gegn titilbaráttuliði Bodö/Glimt. HamKam er aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsvæðið þegar komið er inn á lokakafla tímabilsins.
Í ensku C-deildinni var Benoný Breki Andrésson ónotaður varamaður í sigri Stockport County, sem er í öðru sæti eftir þriðja sigurinn í röð. Liðsfélagar Benoný höfðu betur gegn Bromley og eru með 19 stig eftir 10 umferðir.
Í Póllandi sat Davíð Kristján Ólafsson einnig á bekknum er Polonia Warszawa sigraði toppslag næstefstu deildar á útivelli. Polonia er í öðru sæti deildarinnar, einu stigi á eftir andstæðingum dagsins, með 20 stig úr 11 umferðum.
Al-Sailiya 2 - 2 Qatar SC
Sigma Olomuc 1 - 0 Slovan Liberec
AIK 2 - 2 Göteborg
Viking 3 - 2 Fredrikstad
HamKam 0 - 2 Bodö/Glimt
Stockport 1 - 0 Bromley
Grodzisk 0 - 1 Polonia Warszawa