17.10.26 - 13:35
Brynjar Ingi Erluson
England: Áfall fyrir Chelsea þrátt fyrir góðan sigur

Emi Martínez var borinn af velli

Mynd: EPA

Mikill hiti var í leiknum

Mynd: EPA

Pedro Neto fagnar

Mynd: EPA

Emi Martínez var borinn af velli

Mynd: EPA
Everton 0 - 2 Chelsea
0-1 Pedro Neto ('46 )
0-2 Pedro Neto ('90 )
0-1 Pedro Neto ('46 )
0-2 Pedro Neto ('90 )
Chelsea vann 2-0 sigur á Everton í 7. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á Hill Dickinson-leikvanginum í Liverpool í dag, en meiðsli Emi Martínez vörpuðu skugga á baráttusigur gestanna.
Það var fátt um fína drætti fyrstu tuttugu mínúturnar eða svo, en hörkuna vantaði svo sannarlega ekki og fengu leikmenn beggja liða að finna vel fyrir henni.
Harrison Armstrong fékk gult spjald fyrir hörkutæklingu á Josh Acheampong, en Everton átti einnig nokkrar ágætar tilraunir. Jack Grealish var meðal annars nálægt því að skora þegar hann skaut boltanum í grasið og yfir Martínez, sem náði þó rétt svo að blaka honum yfir markið.
Það sauð síðan upp úr nokkrum mínútum síðar þegar leikmenn beggja liða hópuðust saman eftir harða baráttu James Tarkowski og Moises Caicedo. Mikill hiti var í mönnum og endaði atvikið með því að Tarkowski og Rogers fengu báðir gula spjaldið.
Chelsea var hársbreidd frá því að taka forystuna á 40. mínútu þegar Jordan Henderson sendi hornspyrnu á fjær. Þar kom Caicedo á ferðinni og náði ótrúlegu viðstöðulausu skoti á lofti, en boltinn small í tréverkinu.
Aðeins tveimur mínútum síðar kom upp afar umdeilt atvik þegar Rogers fór í groddalega tæklingu á James Garner. Ekkert spjald fór á loft þrátt fyrir að tæklingin væri í hnéhæð og var Rogers stálheppinn að sleppa við sitt annað gula spjald, sérstaklega miðað við línu dómarans fram að því.
Undir lok hálfleiksins þurftu heimamenn síðan að bjarga á marklínu eftir hornspyrnu Chelsea. Maxence Lacroix kom boltanum í átt að markinu, en Everton-menn voru vel á verði og náðu að bægja hættunni frá.
Það var því nóg um að vera í fyrri hálfleiknum þótt mörkin létu á sér standa, en Chelsea var ekki lengi að breyta því eftir hlé.
Rogers var með boltann vinstra megin og gaf laglega hælsendingu á Jorrel Hato, sem kom á ferðinni og sendi boltann fyrir markið. Sendingin fór í gegnum allan pakkann og alla leið á fjærstöngina þar sem Pedro Neto var mættur og renndi boltanum í nærhornið.
Chelsea var líklegra liðið eftir markið og Cole Palmer var ekki langt frá því að bæta við þegar hann reyndi að vippa boltanum yfir Jordan Pickford, sem stóð framarlega í markinu, en boltinn fór rétt yfir.
Þegar rúmar tuttugu mínútur voru eftir urðu gestirnir hins vegar fyrir miklu áfalli. Martínez lenti í harkalegu samstuði inni í vítateignum eftir aukaspyrnu og þótt Jarrad Branthwaite hafi staðið samstuðið af sér var ljóst að Martínez gat ekki haldið leik áfram. Hann var borinn af velli á sjúkrabörum og Mike Penders kom inn á í hans stað.
Níu mínútum fyrir lok venjulegs leiktíma vildu Chelsea-menn fá vítaspyrnu þegar Rogers féll í teignum eftir viðskipti sín við Tarkowski, en ekkert var dæmt og stóð sú ákvörðun eftir skoðun VAR.
Joao Pedro fékk svo kjörið tækifæri til að gera út um leikinn þegar um fimm mínútur voru eftir. Hann komst í góða stöðu inni í teignum en Pickford varði meistaralega frá honum og hélt Everton inni í leiknum.
Neto sá hins vegar til þess að Chelsea færi heim með öll þrjú stigin þegar hann skoraði annað mark sitt undir lok venjulegs leiktíma. Henderson og Palmer virtust ekki alveg sammála um hvor ætti að taka aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateiginn, en Henderson varð fyrir valinu. Spyrna hans fór í varnarvegginn og þaðan fyrir fætur Neto, sem skrúfaði boltann snyrtilega niður í vinstra hornið.
Mörkin hefðu hæglega getað orðið fleiri, en Chelsea gat vel við unað að vinna 2-0 og halda hreinu þrátt fyrir áfallið með Martínez.
Chelsea fer upp í fjórða sæti deildarinnar með 13 stig á meðan Everton situr í sjötta sæti með tíu stig.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Man City | 7 | +11 | 19 |
| 2 | Arsenal | 6 | +5 | 15 |
| 3 | Brighton | 6 | +13 | 13 |
| 4 | Chelsea | 7 | +4 | 13 |
| 5 | Brentford | 7 | +6 | 11 |
| 6 | Hull City | 7 | +2 | 10 |
| 7 | Everton | 7 | +1 | 10 |
| 8 | Liverpool | 7 | 0 | 10 |
| 9 | Ipswich Town | 7 | -3 | 10 |
| 10 | Leeds | 6 | +3 | 9 |
| 11 | Newcastle | 6 | -3 | 8 |
| 12 | Crystal Palace | 6 | -3 | 7 |
| 13 | Man Utd | 6 | 0 | 6 |
| 14 | Coventry | 6 | -6 | 6 |
| 15 | Nott. Forest | 6 | -3 | 5 |
| 16 | Aston Villa | 6 | -5 | 5 |
| 17 | Sunderland | 6 | -6 | 4 |
| 18 | Fulham | 7 | -4 | 3 |
| 19 | Bournemouth | 6 | -6 | 3 |
| 20 | Tottenham | 6 | -6 | 3 |