17.10.26 - 18:25
Ívan Guðjón Baldursson
England: Manzambi gerði eina markið í Newcastle

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle 0 - 1 Aston Villa
0-1 Johan Manzambi ('36)
0-1 Johan Manzambi ('36)
Svissneska ungstirnið Johan Manzambi skoraði eina mark leiksins er Aston Villa heimsótti Newcastle United í lokaleik dagsins í ensku úrvalsdeildinni. Manzambi var gríðarlega eftirsóttur í sumar og virtist vera á leið til Newcastle, allt þar til Aston Villa stal honum undan nefinu á keppinautum sínum með tilboði á síðustu stundu.
Aston Villa var sterkara liðið í fyrri hálfleik og verðskuldaði að fara inn í leikhlé með forystu eftir laglegt skallamark Manzambi sem varnarmenn Newcastle skildu eftir einan og óvaldaðan innan vítateigs. Manzambi skallaði frábæra fyrirgjöf frá Joao Gomes í netið, en Gomes var mjög öflugur í þessum leik.
Heimamenn í Newcastle voru sterkari aðilinn lengst af í síðari hálfleik en þeim tókst ekki að skapa mikla hættu. Á lokamínútunum virtust gestirnir frá Birmingham líklegri til að bæta marki við heldur en heimamenn til að jafna, og urðu lokatölur 0-1 fyrir lærlinga Unai Emery.
Newcastle og Aston Villa eru jöfn um miðja deild eftir þennan spennandi slag. Þau eiga bæði 8 stig eftir 7 umferðir.

Premier league - karlar
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Arsenal | 9 | +9 | 24 |
| 2 | Man City | 9 | +10 | 21 |
| 3 | Brighton | 9 | +17 | 19 |
| 4 | Chelsea | 9 | +4 | 16 |
| 5 | Everton | 10 | +2 | 16 |
| 6 | Liverpool | 9 | +2 | 15 |
| 7 | Brentford | 9 | +7 | 14 |
| 8 | Bournemouth | 9 | +1 | 12 |
| 9 | Tottenham | 9 | 0 | 12 |
| 10 | Aston Villa | 9 | -3 | 12 |
| 11 | Hull City | 9 | +1 | 11 |
| 12 | Leeds | 9 | +1 | 11 |
| 13 | Newcastle | 9 | -3 | 11 |
| 14 | Ipswich Town | 9 | -4 | 11 |
| 15 | Fulham | 9 | -2 | 9 |
| 16 | Coventry | 10 | -9 | 9 |
| 17 | Man Utd | 9 | -5 | 7 |
| 18 | Crystal Palace | 9 | -12 | 7 |
| 19 | Nott. Forest | 9 | -6 | 6 |
| 20 | Sunderland | 9 | -10 | 5 |