17.10.26 - 19:37
Ívan Guðjón Baldursson
Heiða kom við sögu í tapi - Sandra fylgdist meidd með

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Mynd: Fótbolti.net - Kara Líf Ingibergsdóttir

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Það komu nokkrar íslenskar fótboltakonur við sögu í leikjum dagsins víðsvegar um Evrópu. Heiða Ragney Viðarsdóttir er sú síðasta sem kom við sögu, þegar hún kom inn af bekknum í tapi í efstu deild sænska boltans.
Heiða Ragney tók þátt í 1-2 tapi Eskilstuna gegn Íslendingaliði Norrköping, en Sigdís Eva Bárðardóttir sat allan tímann á bekk gestanna.
Sigurinn er afar dýrmætur fyrir Norrköping sem er í harðri fallbaráttu, sjö stigum á eftir Eskilstuna sem er núna búið að tapa síðustu fimm deildarleikjum í röð en siglir nokkuð lygnan sjó.
Sandra María Jessen var þá ekki í hóp hjá FC Köln vegna meiðsla, en stöllur hennar gerðu sér lítið fyrir og lögðu Hamburger SV að velli í efstu deild þýska boltans í dag. Köln vann 3-1 og er með 12 stig eftir 7 umferðir.
Sandra og stöllur sitja í fimmta sæti deildarinnar, sex stigum á eftir Glódísi Perlu Viggósdóttur og liðsfélögum hennar í risaveldi FC Bayern - sem er með fullt hús stiga eftir sex leiki.
Að lokum var Sunneva Hrönn Sigurvinsdóttir á bekknum í tapi hjá FCK gegn OB í efstu deild í Danmörku. Kaupmannahöfn er í næstneðsta sæti, með 6 stig eftir 11 umferðir - sjö stigum á eftir OB sem er í næsta sæti fyrir ofan. Þetta var fimmti tapleikur liðsins í röð.
Eskilstuna 1 - 2 Norrköping
Köln 3 - 1 HSV
FC Kaupmannahöfn 1 - 2 Odense