17.10.26 - 17:44
Útvarpsþátturinn Fótbolti.net
Markið gegn Fram var tekið af Aroni - Marki frá metinu

Nær Aron að slá markametið um næstu helgi?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar vinna að því að stöðva Aron.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Nær Aron að slá markametið um næstu helgi?

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Sigurðarson, fyrirliði KR, hefur ekki jafnað markametið í efstu deild því búið er að breyta skráningu á markinu sem var upphaflega sett á hann gegn Fram fyrir viku síðan.
Skot Arons var ekki á leið á markrammann þegar hann breytti um stefnu af Kennie Chopart, fyrirliða Fram, og því búið að skrá markið sem sjálfsmark Danans.
Skot Arons var ekki á leið á markrammann þegar hann breytti um stefnu af Kennie Chopart, fyrirliða Fram, og því búið að skrá markið sem sjálfsmark Danans.

TENGT EFNI
Útvarpsþátturinn - Spurningar í Bestu og enska hringborðið
„Boltinn var á leið að hornfánanum. Það er að sjálfsögðu búið að taka markið af, eðlilega því hann var að skjóta í innkast. Ég skildi ekki hvað var í gangi í fjölmiðlum eftir leikinn. Markanefndin er búin að leiðrétta þetta og hann hefur því ekki skorað síðan 6. september," segir Tómas Þór Þórðarson í útvarpsþættinum Fótbolti.net.
Aron er því með 20 mörk skráð en Benoný Breki Andrésson á metið, skoraði 21 mark fyrir Vesturbæjarliðið árið 2024 og varð jafnframt fyrstur til að rjúfa 20 marka múrinn í deildinni.
Aron skoraði ekki í sigri KR gegn Keflavík í dag og hefur nú aðeins einn leik til að slá metið en KR mætir Breiðabliki í lokaumferðinni. Aron hefur verið óhræddur við að tala um að hann stefni á að slá metið og spennandi að sjá hvort honum takist ætlunarverkið um næstu helgi.