Fotbolti.net
17.10.26 - 06:00
Ívan Guðjón Baldursson

Semur við Charlton eftir 13 ár í Brighton

Solly March var orðaður við Crystal Palace í sumar en ekkert varð úr skiptunum.

Solly March var orðaður við Crystal Palace í sumar en ekkert varð úr skiptunum.

Canon

Mynd: EPA

Kantmaðurinn Solly March hefur verið samningslaus síðan hann rann út á samningi hjá Brighton í sumar.
March er 32 ára gamall og samdi ekki við neitt félag síðasta sumar en er núna kominn langt á veg í viðræðum við Charlton Athletic.

Sky Sports er meðal fjölmiðla sem greinir frá og segir að March muni skrifa undir samning við félagið í næstu viku eftir að hafa æft með leikmannahópnum undanfarnar vikur.

March og Nathan Jones þjálfari Charlton störfuðu saman hjá Brighton þegar Jones var partur af þjálfarateyminu, en March lék í heildina 300 keppnisleiki á 13 árum hjá Brighton.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.