17.10.26 - 17:13
Ívan Guðjón Baldursson
Sverrir Páll: Þýðir ekki að fagna þessu of lengi
Auglýsing

Sverrir Páll í leiknum.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Sverrir Páll Ingason var í byrjunarliði Þórs og skoraði í gríðarlega mikilvægum sigri á Stjörnunni í Bestu deildinni í dag.
Lestu um leikinn: Þór 3 - 1 Stjarnan
Þór lyfti sér upp úr fallsæti með sigrinum og getur því tryggt sæti sitt í Bestu deildinni áfram til næsta árs með því að leggja FH á útivelli í lokaumferðinni.
Sverrir Páll skoraði annað markið í 3-1 sigri og er Þór með 27 stig eftir 26 umferðir, einu stigi fyrir ofan nágranna sína í KA sem sitja í fallsæti eftir tap í dag.
„Mér líður bara geðveikt, það er ekki mikið hægt að segja. Þetta er mjög mikilvægt," sagði Sverrir Páll sem var spurður út í andartakið þegar hann skoraði markið mikilvæga. „Ég eiginlega 'blackaði út'. Ég var með planað eitthvað fagn sem ég ætlaði að gera en ég gleymdi því alveg. Ég ætlaði að henda í Cunha fagn fyrir Þorra.
„Það þýðir ekki að fagna þessu of lengi, þetta er ekki búið. Við þurfum að núlstilla okkur og sækja þrjú stig í næsta leik. Við vorum ekkert að fylgjast með leik KA sem var í gangi á sama tíma, við vissum það að við myndum halda okkur uppi með því að vinna síðustu þrjá leikina."
Sverrir Páll er fæddur 2008 og er með 19 landsleiki að baki fyrir unglingaliðin.