17.11.15 - 07:00
Magnús Már Einarsson
Ari Freyr: Erfitt að missa akkerið af miðjunni
Auglýsing

Ari Freyr Skúlason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Freyr Skúlason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Freyr Skúlason spilaði allan leikinn í vinstri bakverðinum hjá Íslandi í 4-2 tapinu gegn Póllandi á föstudag.
Ísland leiddi 1-0 í hálfleik þar en síðari hálfleikurinn var ekki jafn góður og lokatölur urðu 4-2.

„Við gerðum nokkrar skiptingar og það var erfitt að missa akkerið af miðjunni, hann er duglegur í hreinsa. Þetta var æfingaleikur en maður þarf líka að reyna að prófa sig áfram,\" sagði Ari um leikinn gegn Pólverjum.
Ari verður líka í eldlínunni gegn Slóvökum í kvöld. „Ég þekki bara einhverja nokkra gaura en þeir virðast vera þokkalegir á þessum myndböndum sem ég hef séð. Þeir eru með góða sóknarmenn og þéttir varnarlega svo þetta verður örugglega svipaður leikur.\"
Nokkrir nýliðar eru í íslenska hópnum að þessu sinni. „Þeir hafa komið vel inn í þetta hingað til. Það var skemmtilegt fyrir Arnór (Ingva Traustason) að fá heilan leik og það verður gaman að sjá hvað hinir fá í næsta leik.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.