Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fim 17. nóvember 2022 12:55
Elvar Geir Magnússon
Haller þarf í aðra aðgerð vegna æxlis í eistum
Mynd: Getty Images
Fílabeinsstrendingurinn Sebastian Haller hefur opinberað að hann þurfi að fara í aðra aðgerð vegna æxlis í eistum.

Þessi 28 ára leikmaður Borussia Dortmund fór í fyrri aðgerðina í júlí eftir að æxli uppgötvaðist og hefur verið í lyfjameðferð.

„Baráttu minni er ekki lokið," sagði Haller sem gekk í raðir Dortmund frá Ajax í sumar.

„Ég vil þakka fyrir allan þann stuðning og styrk sem þið hafið gefið mér. Hlakka til að að sjá ykkur öll bráðlega."

Hann hefur ekki náð að keppa mótsleik fyrir þýska félagið.


Athugasemdir
banner
banner
banner