18.01.05 - 15:05
Diao lánaður til Birmingham (Staðfest)




Senegalinn Salif Diao er kominn til Birmingham þar sem hann verður að láni út leiktíðina frá Liverpool. Hann hefur ekki staðið sig með skyldi hjá Liverpool en hann kom frá franska liðinu Sedan fyrir 5 milljónir punda árið 2002.
Hann mun leysa stöðu Robbie Savage á miðjunni hjá Birmingham en Savage er á leiðinni til Blackburn. Diao ræddi við David O´Leary í gær um að koma til Aston Villa en honum leist betur á Birmingham og æfði hann með liðinu í morgun.
Þar hittir hann fyrir fyrrum félaga sinn Emile Heskey sem fór til Birmingham frá Liverpool síðasta sumar.
Þar hittir hann fyrir fyrrum félaga sinn Emile Heskey sem fór til Birmingham frá Liverpool síðasta sumar.
