Paolo Maldini, yfirmaður knattspyrnumála hjá AC Milan, segir að félagið sé í viðræðum um að fá Fikayo Tomori á láni frá Chelsea.
Tomori er 23 ára gamall varnarmaður en hefur ekki fengið mikið af tækifærum með Chelsea á þessari leiktíð.
Hann hefur verið orðaður við Milan síðustu daga og þá greindi Frank Lampard, stjóri Chelsea, frá því að Tomori gæti farið frá félaginu á láni.
Maldini hefur nú staðfest áhuga og viðræður Milan við Tomori en hann gat þó ekki tryggt komu leikmannsins.
„Það er stór munur á því að ná leikmanni og ná honum næstum því til félagsins. Þetta er skapandi markaður," sagði Maldini.
Athugasemdir