Fotbolti.net
18.04.25 - 19:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Mjólkurbikarinn: Jeppe Pedersen tryggði Vestra áfram eftir vítaspyrnukeppni

Mjólkurbikarinn: Jeppe Pedersen tryggði Vestra áfram eftir vítaspyrnukeppni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Vestri 3 - 3 HK (5-4 í vítaspyrnukeppni)
1-0 Eiður Aron Sigurbjörnsson ('22 )
2-0 Kristoffer Grauberg Lepik ('26 )
2-1 Dagur Orri Garðarsson ('30 )
2-2 Tumi Þorvarsson ('57 )
3-2 Daði Berg Jónsson ('90 )
3-3 Jóhann Þór Arnarsson ('90 )
Lestu um leikinn
er komið áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir ótrúlega spennandi vítaspyrnukeppni.

Vestri náði tveggja marka forystu en HK gafst ekki upp og náði að jafna metin. Það stefndi allt í framlengingu, Daði Berg Jónsson virtist vera tryggja Vestra sigurinn þegar hann skoraði undir lokin.

HK-ingar voru ekki hættir því Jóhann Þór Arnarsson kom HK í framlengingu þegar hann negldi boltanum í netið á fjórðu mínútu uppbótatíma. Ekkert mark var skorað í framlengingunni svo grípa þurfti til vítaspyrnukeppni.

Benjamin Schubert varði fyrstu tvær spyrnur HK en Vestri skoraði úr fyrstu spyrnunni en klikkaði á næstu tveimur. Það var svo Hákon Ingi Jónsson sem skaut í stöngina úr sjöunda víti HK og Jeppe Pedersen tryggði svo Vestra sigurinn í kjölfarið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.