18.05.04 - 00:00
Elvar Geir Magnússon
Alex Rae til Glasgow Rangers (Staðfest)

Skoska liðið Glasgow Rangers hefur staðfest að liðið hefur tryggt sér þjónustu Alex Rae næstu tvö árin. Rae er 34 ára miðjumaður en samningur hans við Wolves, sem féll úr ensku úrvalsdeildinni, er að renna út. Hann skoraði átta mörk fyrir Úlfana á tímabilinu.
Rae var í herbúðum Rangers á sínum tíma en fór þaðan til Falkirk og svo í enska boltann. Á Englandi lék hann með Millwall og Sunderland áður en hann gekk til liðs við Úlfana.
Þá hefur Rangers ákveðið að leysa brasilíska miðjumanninn Emerson undan samningi sínum við liðið. Hann hefur ekki náð að láta ljós sitt skína á Ibrox og er nú fáanlegur á frjálsri sölu.
Rangers ætlar að endurheimta meistaratitilinn á næsta tímabili og hefur liðið einnig fengið franska landsliðsmanninn Jean Alain Boumsong.