18.06.04 - 13:21
Magnús Már Einarsson
Schuster tekur við Levante í La Liga (Staðfest)

Schuster alltaf hress.


Schuster alltaf hress.

Bernd Schuster fyrrum landsliðsmaður Þýskalands hefur verið ráðinn stjóri Levante liðs frá Valencia sem að tryggði sér sæti í La Liga á Spáni nú í vor. Schuster sem að er 44 ára lék á sínum tíma með Real Madrid, Atletico Madrid og Barcelona á Spáni og þjálfaði Xerez í tvö ár áður en að hann tók við Shaktar Donetsk í júní 2003 en hann var rekinn frá Shaktar í maí síðastliðnum.
Schuster hefur skrifað undir eins árs samning við Levante með möguleika á framlengingu um annað ár. Hann tekur við stjórastarfi Levante af Manolo Preciado sem að kom liðinu upp í efstu deild í fyrsta sinn í 39 ára fyrir skömmu.
