18.07.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð
Merson kominn til Walsall. (STAÐFEST)
Forráðamenn Walsall tilkynntu í morgun félagsskipti hins 35 ára gamla Paul Merson til félagsins. Colin Lee stjóri liðsins sagði við það tækifæri að koma Merson til félagsins hafi verið stærstu félagsskipti þess frá upphafi. Merson samþykkti tveggja ára samning við félagið og lauk ferli sínum hjá Portsmouth með fjárhagslegri sátt en hann átti eitt ár eftir af samningnum en taldi sig ekki nægilega góðan fyrir úrvalsdeildina.
