18.07.03 - 00:00
Jose Mari til Villareal (staðfest)
Framherjinn sem spilaði með Atletico á síðasta tímabili gekk frá lánssamningi til Villareal nú í morgun og mun hann spila allt næsta tímabil þar. Jose er samningsbundinn Milanmönnum en þar er lítið pláss fyrir hann en fremst eru þeir hvað sterkastir.
Jose sem verður 25 ára í næsta mánuði hóf ferilinn 1997 með Sevilla þegar hann kom inná gegn Atletico Madrid. Hann verður þriðji leikmaðurinn sem kemur til klúbbsins en fyrir eru Sonny Anderson og Fabricio Coloccini sem lék einnig með Atletico á síðasta tímabili.
