Fotbolti.net
18.07.17 - 22:36
Magnús Már Einarsson

Harpa: Þetta er fáránlega pirrandi

Auglýsing
Harpa í baráttunni í kvöld.

Harpa í baráttunni í kvöld.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
„Liðið skildi allt eftir inni á vellinum. Það var gott að koma inn á og liðsheildin í þessu liði er ótrúleg,\" sagði Harpa Þorseinsdóttir við Fótbolta.net eftir 1-0 tapið gegn Frökkum í kvöld.

Frakkar skoruðu eina markið úr vítaspyrnu undir lok leiks en frammistaða íslenska liðsins var góð gegn öflugu liði Frakka.
„Þetta er fárálega pirrandi. Við erum ósáttar við að fá ekki þetta víti sem Fanndís átti að fá. Hún var að striða varnarmönnunum aftur og aftur og það er ótrúlega fúlt að fá ekki það sem við áttum skilið.\"

Harpa var ánægð með frammistöðuna í kvöld. „Við náðum að stimpla okkur inn. Ef liðin halda að við séum í þessu til að vera bara með þá held ég að við höfum sýnt það í kvöld að það er ekki raunin.\"

Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.