Fotbolti.net
18.07.26 - 18:10
Ívan Guðjón Baldursson

Lengjudeildin: Aron Snær tryggði dýrmæt stig

Lengjudeildin: Aron Snær tryggði dýrmæt stig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Þróttur R. 1 - 0 Völsungur
1-0 Aron Snær Ingason ('54)
Lestu um leikinn: Þróttur R. 1 - 0 Völsungur
Þróttur tók á móti Völsungi í lokaleik dagsins í Lengjudeild karla og var staðan markalaus eftir bragðdaufan fyrri hálfleik.

Heimamenn voru sterkari aðilinn en sköpuðu sér ekki mikið fyrr en í seinni hálfleik. Þeir fengu tækifæri áður en Aron Snær Ingason náði forystunni eftir laglegt einstaklingsframtak á 54. mínútu.

Gestirnir frá Húsavík reyndu að jafna metin en sköpuðu litla hættu svo heimamenn sigldu sigrinum nokkuð þægilega í höfn, lokatölur 1-0. Þeir komust ekki framhjá lágri varnarblokk Þróttara og sköpuðu mestu hættuna úr föstum leikatriðum.

Þróttur endurheimtir þriðja sæti Lengjudeildarinnar með þessum sigri. Þar er liðið með 27 stig eftir 14 umferðir, fjórum stigum á eftir toppliði Aftureldingar.

Völsungur er í harðri fallbaráttu, ekki með nema 8 stig eftir fimmta deildarleikinn í röð án sigurs.
Lengjudeildin: Aron Snær tryggði dýrmæt stig
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.