Fotbolti.net
25.08.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Carragher um Wirtz: Veit ekki hverju fólk er að búast við

Carragher um Wirtz: Veit ekki hverju fólk er að búast við
Canon

Mynd: EPA

Jamie Carragher, fyrrum leikmaður Liverpool, telur að Florian Wirtz passi ekki inn í leikkerfi Andoni Iraola.

Wirtz gekk til liðs við Liverpool síðasta sumar fyrir 116 milljónir punda en hefur ekki staðið undir væntingum. Hann átti erfitt uppdráttar gegn Newcastle um helgina og var tekinn af velli eftir klukkutima leik.
Wirtz var fyrir aftan Alexander Isak gegn Newcastle en Carragher vill sjá Dominik Szoboszlai í þeirri stöðu.

„Ég veit ekki hvar hann passar inn í liðið. Mér finnst eiginlega að hann eigi að vera í hálfsvæðinu vinstra megin en Iraola elskar vængmenn. Hann villleikmenn sem eru með orku upp og niður kantinn," sagði Carragher.

„Hann er ekki að standa undir væntingum. Ég held að það sem við höfum séð undanfarið ár er það sem hann er, sem er snyrtilegur fótboltamaður. Ekki leikmaður sem á að vera virði 110 milljónir punda, frekar 50-60 milljónir punda. Ég veit ekki hverju fólk er að búast við."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.