24.08.26 - 21:37
Víðir Sigurðsson
Víðir Sig: Aron og KR í metaham - Hallgrímur þriðji í sögunni - Margir með áfanga í 20. umferð

Aron Sigurðarson fagnar einu af þremur mörkum sínum gegn KA á Akureyri.

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Aron Sigurðarson fyrirliði KR er óstöðvandi, skoraði fyrstu þrennuna á ferlinum og markametið blasir við honum. KR-ingar eru líka langt komnir með að setja markamet. Þá eru Framarar í þann veginn að slá eigið félagsmet.
Hallgrímur Mar Steingrímsson náði í gær sjaldgæfum áfanga sem aðeins tveir aðrir Íslendingar hafa náð. Gylfi Þór Sigurðsson er kominn fram úr Ásgeiri Sigurvinssyni og Birnir Snær Ingason, Kennie Chopart, Lúkas Logi Heimisson, Dagur Ingi Valsson og Árni Vilhjálmsson eru meðal þeirra sem koma við sögu í þessari grein um 20. umferð Bestu deildar karla.
Úrslitin í 20. umferð:
Keflavík - ÍBV 1-0
ÍA - FH 1-1
KA - KR 3-5
Stjarnan - Þór 4-2
Víkingur - Valur 2-0
Breiðablik - Fram 3-4
Staðan: Víkingur 51, KR 43, Fram 43, Breiðablik 30, Keflavík 28, ÍA 26, Stjarnan 24, Valur 23, FH 18, ÍBV 17, KA 16, Þór 15.