25.08.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Leikmaður Chelsea verður liðsfélagi Orra Steins


Mynd: Franska fótboltasambandið


Mynd: Franska fótboltasambandið
Mamadou Sarr, varnarmaður Chelsea, er á leið til Real Sociedad á láni.
Fabrizio Romano greinir frá því að félögin hafa náð samkomulagi og hann mun spila með spænska liðinu út tímabilið.
Fabrizio Romano greinir frá því að félögin hafa náð samkomulagi og hann mun spila með spænska liðinu út tímabilið.
Sarr er tvítugur senegalskur miðvörður en hann gekk til liðs við Chelsea frá Strasbourg í fyrra. Hann fór á lán til Strasbourg en var kallaður til baka eftir áramót. Hann kom við sögu í sex leikjum með Chelsea á síðustu leiktíð.
Real Sociedad tapaði 1-0 gegn Real Betis í fyrstu umferð spænsku deildarinnar um helgina. Orri Steinn Óskarsson er á mála hjá félaginu.
Real Sociedad tapaði 1-0 gegn Real Betis í fyrstu umferð spænsku deildarinnar um helgina. Orri Steinn Óskarsson er á mála hjá félaginu.
