Fotbolti.net
25.08.26 - 08:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Nottingham Forest ætlar að fá Delap

Nottingham Forest ætlar að fá Delap
Canon

Mynd: EPA

Nottingham Forest er að vinna í því að fá Liam Delap frá Chelsea. Sky Sports greinir frá.
Everton er meðal annarra félaga sem hafa áhuga á Delap, en Forest ætlar að vinna hratt til að vinna kapphlaupið um enska framherjann.

Chelsea metur þennan 23 ára gamla leikmann á 50 milljónir punda. Þeir fengu hann frá Ipswich síðasta sumar fyrir 30 milljónir punda.

Delap og fulltrúar hans eru að vinna hörðum höndum að því að finna bestu lausnina fyrir framherjann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.