25.08.26 - 09:22
Kári Snorrason
Savinho til Tottenham (Staðfest)

Ánægður við undirskrift.

Mynd: Tottenham

Ánægður við undirskrift.

Mynd: Tottenham
Brasilíski vængmaðurinn Savinho er genginn í raðir Tottenham frá Manchester City. Kaupverðið er sagt nema 75 milljónum punda sem gæti hækkað um tíu milljónir til viðbótar eftir ákvæðum.
Brasilíumaðurinn gekk í raðir City frá Girona á þrjátíu milljónir punda fyrir tveimur árum. Hann spilaði 84 leiki fyrir félagið og skoraði sjö mörk.
Savinho er þriðji leikmaðurinn sem Tottenham kaupir dýrum dómi en félagið hefur einnig fest kaup á Sandro Tonali fyrir 93 milljónir punda, Mateus Fernandes fyrir 85 milljónir punda og Jan Paul van Hecke fyrir 51 milljón punda.
Ásamt því hefur félagið fengið þá Marcos Senesi, Andy Robertson og Martin Dubravka á frjálsri sölu. Þá hefur félagið sömuleiðis verið orðað við annan leikmann Man City, Omar Marmoush.
Í tilkynningu Tottenham kynnir Xavi Simons Savinho til leiks sem nýjan leikmann Tottenham en þeir léku báðir saman hjá PSV.

Welcome to Tottenham, Sávio ???? pic.twitter.com/cluPZrKRHc
— Tottenham Hotspur (@SpursOfficial) August 25, 2026