Palli Gísla: Eigum skilið að vera á botninum
Auglýsing

Útlitið er svart hjá Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Útlitið er svart hjá Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórsarar eiga einfaldlega skilið að vera í neðsta sæti Pepsi-deildarinnar. Þetta sagði Páll Viðar Gíslason, þjálfari liðsins, eftir 4-1 tap gegn Fylki í fallbaráttuslag í kvöld. Ekkert virðist geta komið í veg fyrir fall Þórs.
,,Mikið væri gott að geta farið einhverntímann í viðtal eftir sigurleik,\" sagði Páll svekktur eftir leikinn. ,,Mörkin í fyrri hálfleik voru í þeim dúr að við eigum skilið að vera á botninum held ég.\"
Þórsarar eru með níu stig á botninum, sex stigum frá öruggu sæti.
,,Auðvitað reynum við að klára þetta mót með höfuðið uppi og meðan það er möguleiki samkvæmt tölfræðinni þá höldum við áfram. Ef það verður niðurstaðan að það dugir ekki þá bítum við í það súra epli og rísum upp aftur,\" sagði Páll en er sætið hans heitt?
,,Sætið mitt er búið að vera heitt síðan ég fór í það. Ég er ekki að gefast upp. Ef það verður niðurstaðan að falla þá fell ég með liðinu og ber ábyrgð á því. Við reynum að rísa síðan aftur upp Þórsarar, hvort sem ég verð þjálfari eða ekki. Við reynum að klára þetta mót með sæmd.\"
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.