Fotbolti.net
22.10.26 - 11:00
Brynjar Ingi Erluson

Man Utd undirbýr uppstokkun í varnarlínunni

Martínez gæti yfirgefið félagið næsta sumar

Martínez gæti yfirgefið félagið næsta sumar

Canon

Mynd: EPA

Manchester United ætlar sér að ráðast í miklar breytingar á varnarlínunni á næsta ári, en frá þessu greinir TeamTalk.
Enska félagið einbeitti sér að því að styrkja miðsvæðið í sumar með kaupum á Andrey Santos, Youri Tielemans og Carlos Baleba, en næsta skref er að taka varnarlínuna í gegn.

Þrír leikmenn gætu yfirgefið félagið á næsta ári. Lisandro Martínez hefur verið orðaður við Atlético Madríd og Ítalíumeistara Inter, en framtíð Englendinganna Luke Shaw og Harry Maguire er sömuleiðis óljós.

Maguire gæti þó unnið sér inn nýjan samning og það sama á við um Shaw, en þá þyrfti hann að sætta sig við launalækkun.

United ætlar sér að styrkja varnarlínuna óháð því hvort þessir leikmenn verði áfram eða ekki. Félagið vill fá nýjan miðvörð ásamt hægri og vinstri bakverði.

Martínez gagnrýndi Jason Wilcox, yfirmann fótboltamála hjá United, eftir 2-0 tapið gegn Atlético á dögunum og taldi félagið ekki hafa gert nóg á félagaskiptamarkaðnum í sumar. Hann sagði leikmannahópinn ekki hafa verið styrktan nægilega til að geta keppt við stærstu liðin, en baðst síðar afsökunar á ummælum sínum.

Þá er óvíst hvort þessar áætlanir breytist í ljósi þess hversu heitt sæti Michael Carrick er orðið. Man Utd tapaði 4-1 gegn Como í gær og gæti Carrick verið látinn taka pokann sinn á næstu dögum. Nýr stjóri gæti þá komið inn með sínar eigin hugmyndir um hvaða leikmenn félagið ætti að sækja í sumarglugganum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.