Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
banner
   sun 18. ágúst 2019 23:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Maddison segir Jeremy Clarkson að einbeita sér að bílum
Mynd: Getty Images
James Maddison átti fínan leik þegar Leicester gerði jafntefli gegn Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í dag. Hann var maður leiksins að mati Sky Sports.

Maddison fékk mjög gott færi til að tryggja Leicester sigurinn í leiknum, en hann skaut langt yfir markið úr því færi.

Jeremy Clarkson, fyrrum þáttastjórnandi Top Gear-bílaþáttana vinsælu, lét Maddison heyra það á Twitter að því virðist vegna klúðursins. Clarkson er stuðningsmaður Chelsea.

„James Maddison. Eyðir of löngum tíma á hárgreiðslustofunni. Ekki nægum tíma í að æfa fótbolta," skrifaði Clarkson, en Maddison svaraði honum auðvitað.

„Einbeittu þér að bílum vinur. Get talið það á einni hendi hversu margar klippingar þú átt eftir," skrifaði Maddison.

Clarkson var rekinn úr Top Gear 2015 fyrir að ráðast á einn framleiðanda þáttanna.


Athugasemdir
banner
banner