Fotbolti.net
18.08.26 - 08:28
Elvar Geir Magnússon

Dedic til Newcastle (Staðfest) - Endurnýjar kynni við Jaissle

Dedic á 24 ára afmæli í dag.

Dedic á 24 ára afmæli í dag.

Canon

Mynd: EPA

Newcastle hefur fengið varnarmanninn Amar Dedic frá Benfica í Portúgal en leikmaðurinn hefur skrifað undir fimm ára samning. Kaupverðið er um 30 milljónir punda.

Dedic er hægri bakvörður og er kynntur á afmælisdaginn, hann er 24 ára í dag. Hann er fæddur og uppalinn í Austurríki en valdi að spila fyrir Bosníu vegna ættartengsla sinna. Dedic á 31 landsleik að baki og hefur skorað eitt mark, gegn Íslandi í undankeppni EM fyrir þremur árum.

Hann varð austurrískur meistari með Red Bull Salzburg 2023 undir stjórn Matthias Jaissle, núverandi stjóra Newcastle. Enska félagið hefur verið í leit að hægri bakverði síðan Kieran Trippier fór á frjálsri sölu til Wolves.

Möguleiki er að Dedic spili gegn Liverpool í fyrstu umferð ensku úrvalsdeildarinnar á sunnudag en Tino Livramento er enn að glíma við meiðslin sem hann hlaut með enska landsliðinu.
„Þetta er sérstök tilfinning og mikill heiður. Ég er mjög ánægður með að vera kominn hingað og get ekki beðið eftir því að spila fyrir framan hina mögnuðu stuðningsmenn félagsins. Það var stór þáttur að spila aftur fyrir Matthias, við þekkjum hvorn annan vel," segir Dedic.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.